Pétur Jóhann í Bergi

Hinn eini sanni Pétur Jóhann Sigfússon ætlar að skella sér í Berg menningarhús með sýninguna sína "Pétur Jóhann óheflaður" föstudagskvöldið 20.febrúar.
Pétur er eins og alþjóð veit gríðarlega skemmtilegur og eftirsóttur uppistandari. Og þar að auki hefur hann unnið marga og stóra sigra í kvikmyndum og sjónvarpi. Sýningin PÉTUR JÓHANN ÓHEFLAÐUR er 2 klst uppistandssýning samin af Pétri sjálfum. Síðustu mánuði hefur hann flakkað um landið með þetta show og fyllt hvert húsið á fætur öðru.
Forsala miða hefst miðvikudaginn 11. feb og verður á Þula cafe-bistro.  2.900 í forsölu // 3.900 við hurð.

16 ára aldurstakmark er á sýninguna og þeir sem ekki hafa náð 18 ára aldri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.

Húsið opnar kl 20:00. Skynsamlegt er að mæta snemma til að ná góðum sætum.

Taktu kvöldið frá og græjaðu frí í vinnunni fram að jólum. Harðsperrur í maga munu orsaka fjarveru þína.

PÉTUR JÓHANN - DALVÍK - FÖSTUD. 20. FEB - KL 21:00.

 

Athugasemdir