Ljósmyndasýningin Litbrigði

ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna Litbrigði í Bergi þann 1. maí kl. 13:00. ÁLFkonur er félagsskapur kvenna á Akureyri og Eyjafirði sem eiga ljósmyndun að áhugamáli og hafa starfað saman frá sumrinu 2010. Er þetta níunda samsýning hópsins og að þessu sinni leitast þær við að fanga litbrigði haustsins.

Athugasemdir