Leikhústónlist á tímum andspyrnu - BERGMÁL

Í kvöld, fimmtudaginn 9. ágúst, eru lokatónleikar BERGMÁLS en þeir nefnast Leikhústónlist á tímum andspyrnu.

Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er miðaverð kr. 2.500.

Söngvari á þessum tónleikum er Sigríður Thorlacius, sem er íslenskum áheyrendum af góðu kunn. Hún tekst hér á við fjölbreytta arfleifð Kurt Weill og konu hans söngkonunnar Lotte Lenya og samtímamanna þeirra. Hljóðfæraleikur er í höndum hljóðfæraleikara Bergmáls.

Athugasemdir