Upplýsingamiðstöðin í Bergi er starfrækt yfir sumarið frá 1.júní - 31.ágúst.
Þar veitir starfsmaður allar helstu upplýsingar til gesta og ferðamanna á íslensku og ensku.
Opnunartími sumarið 2026 er eins og hér segir:
Mánudag 11:00-16:00
Þriðjudag - föstudags 10:30-15:30
Laugardag og sunnudag er lokað.
Ferðaþjónusta í Dalvíkurbyggð er öflug og afþreying með besta móti. Bókasafn, hvalaskoðun, sjóstöng, hestaferðir, sund og skíði eru meðal þess sem hér er í boði auk þess sem hér eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í að skipuleggja hvataferðir, ævintýraferðir og fl.
Nánari upplýsingar um ferðaþjónustu á svæðinu er að finna á www.visittrollaskagi.is
