Myndlistarsýningar:
Menningarhúsið er lifandi og framsækinn vettvangur, þar sem tækifæri gefst til að að kynnast fjölbreytileika myndlistar.
Sýningarrýmið er stór, fjölnota salur þar sem er hátt til lofts og vítt til veggja. Gera má ráð fyrir viðburðum í rýminu á meðan á sýningu stendur. Einnig er í boði að sýna í Gallerí Andyri, andyri hússins hentar fyrir smærri sýningar. Nánari upplýsingar má finna undir flipanum Bóka Berg.
Tónleikar:
Húsið er vel búið fyrir tónlistarflutning en salurinn er sérhannaður til að bera vel hljóð. Allir fletir eru harðir auk þess sem hægt er að stýra hljóði með sérstökum hljóðtjöldum.
Í húsinu er flygill sem hægt er að leigja fyrir tónleikahald. Innifalið í leigunni á salnum er æfing fyrir flytjendur í allt að þrjár samfelldar klukkustundir og sjá flytjendur um að bóka æfingu með góðum fyrirvara hjá verkefnastjóra Bergs.
Listafólk þarf ekki að greiða gjald fyrir aðstöðuna í Menningarhúsinu Bergi vegna sýningarhalds, en Menningarfélagið Berg rukkar 15% af seldum verkum.
ATH: Sýningarrýmið er fjölnota. Gera má ráð fyrir viðburðum í rýminu á meðan á sýningu stendur.