Sjómannadagur á Byggðasafni

Fáir heimsóttu byggðasafnið Hvol á sjómannadag. Félagar úr Karlakór Dalvíkur sungu sjómannalög. Vonandi koma gestir á 17. júní þá er boðið upp á kaffi og kleinur. Gestir sem að koma í þjóðbúningum fá frítt inn. Á safninu er skemmtileg sýning á þjóðbúningadúkkum sem vert er að skoða.