Hver var Jóhann Svarfdælingur?

Íslenski safnadagurinn er á sunnudaginn 8. júlí. Öll söfn á landinu bjóða gesti sína velkomna og það er enginn aðgangseyrir þennan dag. Í boði verður hins vegar að hlýða á Óskar Þór Halldórsson fjalla um Jóhann Svarfdæling. En eins og allir vita þá var Jóhann um tíma hæsti maður heims. Óskar gerði heimildarmynd um Jóhann sem alltaf er hægt að horfa á á safninu.

Fyrirlesturinn hefst kl. 14.00