Bessastaðir. Guðlaugur Jón Þorleifsson og Andrea Kristjana Bessadóttir byggðu sér hús í landi Upsa árið 1921 og nefndu Mýrakot. Þetta var upphaflega torfbær, sem eyðilagðist í jarðskjálftanum 1934 og var rifinn en íbúðarhús úr steinsteypu á einni hæð, með risi og járnklætt þak byggt í staðinn, og við þá breytingu virðist býlið hafa skipt um nafn og kallaðist upp frá því Bessastaðir (Kristján E. Hjartarson, Húsaskráning)
Bergi menningarhúsi | 620 Dalvík | Sími: 460-4932