Unnur Dalrós 3 ára

Unnur Dalrós 3 ára

Elsku Unnur Dalrós okkar varð 3 ára þann 4. apríl, við héldum upp á afmælið hennar þá í leikskólanum í tilefni dagsins. Hún skreytti fallegu kórónuna sína sem að hún var með á afmælisdaginn og við sungum fyrir hana afmælissönginn. Hún blés á kertin þrjú og við hjálpuðumst við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Unni og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.