Stefnir Blær 2 ára

Stefnir Blær 2 ára

Stefnir Blær varð 2 ára þann 21. mars, við héldum upp á afmælið hans í leikskólanum í tilefni dagsins. Hann málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hann afmælissönginn. Við blésum saman á kertin tvö og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Stefni Blæ og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.