Sara Sól 4 ára

Sara Sól 4 ára

Elsku Sara Sól okkar er 4 ára í dag. Hún málaði og skreytti kórónu í tilefni dagsins sem hún var með í dag. Í ávaxtatímanum sungum við fyrir hana afmælissönginn, hún blés á kertin fjögur og bauð svo upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Hún flaggaði svo íslenska fánanum þegar við komum út. Við óskum Söru Sól og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.