Rúna Hólm 4 ára

Rúna Hólm 4 ára

Elsku Rúna Hólm okkar verður fjögurra ára á sunnudaginn, 12. febrúar. Við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum í dag. Hún málaði og skreytti glæsilega kórónu sem hún var með í dag. Við sungum fyrir hana afmælissönginn í afmælisstundinni, hún blés á kertin fjögur og bauð svo upp á ávexti úr körfunni góðu. Í útiverunni flaggaði hún svo íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Rúnu Hólm og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.