Óskar Hrafn 2 ára

Óskar Hrafn 2 ára

Óskar Hrafn varð 2 ára þann 4. nóvember, við héldum upp á afmælið hans í leikskólanum í tilefni dagsins. Hann málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hann afmælissönginn. Við blésum saman á kertin tvö og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Óskari Hrafni og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.