Mímir Haki okkar varð 2 ára þann 15.janúar og við héldum upp á afmælið hans hér í leikskólanum á sjálfan afmælisdaginn. Hann málaði fallega kórónu í tilefni dagsins, við sungum fyrir hann afmælissönginn, hann blés á kertin tvö og fékk aðstoð við að gefa öllum ávexti. Við óskum Mími Haka og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.