Marey Hilda 4 ára

Marey Hilda 4 ára

Á föstudaginn 31. október átti Marey Hilda 4. ára afmæli. Við héldum upp á daginn hennar í leikskólanum. Hún gaf krökkunum afmælisávexti ásamt því að nemendur og kennarar sungu fyrir hana. Í útiveru flaggaði hún íslenska fánanum. Við á Krílakoti óskum Marey og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.