Marey Hilda 2 ára

Marey Hilda 2 ára

Marey Hilda er 2 ára í dag, við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum í tilefni dagsins. Hún málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hana afmælissönginn. Við blésum saman á kertin tvö og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Marey Hildu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.