Listasýning í Bergi

Listasýning í Bergi

Hólakot og Kötlukot bjóða til Listasýningar í Menningarhúsinu Bergi

 

Nemendur á elsta leikskólastigi Dalvíkurbyggðar bjóða fjölskyldum sínum, vinum og vandamönnum og bara öllum íbúum Dalvíkurbyggðar á opnun listasýningar sinnar í Menningarhúsinu Bergi.

Opnunin er laugardaginn 4. mars kl. 14.00 – léttar veitingar í boði.

Börnin munu selja myndirnar sínar á litlar 2.000 krónur og rennur ágóðinn til foreldrafélagsins sem mun sjá um að nýta peninginn þannig að listamennirnir sjálfir njóti góðs af. Auðvitað er enginn skuldbundinn því að kaupa mynd barnsins síns og ef fólk hefur ekki tök á því sjálft eða annar því nákomið fær barnið auðvitað samt að njóta „verðlaunanna“ sem þau fá í vor.

Listasýningin er samstarfsverkefni Safna Dalvíkurbyggðar, Menningarhússins og leikskólanna tveggja í sveitafélaginu okkar. Börnin heimsóttu Byggðasafnið Hvol og fengu kynningu á safninu og fjölbreyttum safnkosti þess. Að kynningarferðinni lokinni fengu börnin að velja sér einn mun til að nota sem efnivið í listaverkið sitt.

Listræn útfærsla er alfarið í höndum þessara litlu listamanna og meðfylgjandi við hvert verk er túlkun þeirra á verkinu með þeirra orðum. Sjón er sögu ríkari.

Börnin mega gjarnan mæta í fínum fötum og boðið verður upp á kaffi, djús og „meððí“.

Sjáumst við hátíðlega listaopnun listamanna framtíðarinnar í Menningarhúsinu Bergi.