Kaffihúsaferð og jólaföndur með foreldrum

Kaffihúsaferð og jólaföndur með foreldrum

Fimmtudaginn 24. nóvember bauð foreldrafélagið öllum á Mánakoti á kaffihús í Bergi. Hófý Skúla tók glöð á móti okkur með heitu kakói, kringlum og piparkökum. Allir voru svo kurteisir og glaðir og okkur öllum til sóma. Þura (sem vann í mörg ár á Kríló og margir foreldrar hafa sjálfsagt lært margt af) kom líka og sagði okkur stutta jólasögu. Þetta var yndisleg stund og þökkum við foreldrafélaginu kærlega fyrir boðið. Myndir eru komnar inn á myndasíðuna hér og á Karellen.

Í gær, 30. nóvember, var jólaföndur með foreldrum á Mánakoti. Mikið var nú yndislegt að fá ykkur svona mörg til okkar að njóta með barninu ykkar og okkur hinum. Myndir frá þessu eru líka komnar inn á heimasíðuna og Karellen.