Julia Cara 2 ára

Julia Cara 2 ára

Þann 26. febrúar verður Julia Cara 2 ára, við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum í tilefni dagsins. Hún málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hana afmælissönginn. Við blésum saman á kertin tvö og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Julia Cara og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.