Jóhann Már 3 ára

Jóhann Már 3 ára

Á föstudaginn, 28. apríl, varð elsku Jóhann Már okkar þriggja ára. Við héldum daginn hans hátíðlegan eins og okkar er von og vísa. Hann málaði og skreytti kórónu sem hann var með á afmælisdaginn. Við sungum fyrir hann afmælissönginn, hann blés á kertin þrjú og bauð svo upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Í útiverunni flaggaði hann svo íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Jóhanni Má og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.