Sími: 460 4950
Á miðvikudaginn 18 október héldum við upp á 5. ára afmæli Hrafnhildar Lilju. Í tilefni dagsins setti hún upp glæsilegu kórónuna sína, blés á kertin 5, gaf afmælisávexti og nemendur og kennarar sungu fyrir hana. Í útiveru flaggaði hún síðan íslenska fánanum. Við í Krílakoti óskum Hrafnhildi Lilju og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.