Hjóladagur Krílakots 2023

Hjóladagur Krílakots 2023

Í dag 23. júní var árlegi hjóladagurinn á Krílakoti. Allir komu með hjólin sín og hjóluðu yngstu tvær deildirnar (Skýjaborg og Sólkot) á bílaplani skólans og eldri deildirnar fengu að hjóla á bílaplaninu hjá kirkjunni og götunni fyrir framan þar sem búið var að loka fyrir umferð. Lögreglan kom í heimsókn og gaf öllum sem vildu límmiða á hjólið sitt og þökkum við þeim kærlega fyrir heimsóknina.