Sími: 460 4950
Á miðvikudaginn héldum við upp á fyrsta 6 ára afmælið á Hólakoti þetta árið. Hann Hilmar Thor átti afmæli. Í tilefni dagsins setti hann upp glæsilegu kórónuna sína, blés á kertin 6, gaf afmælisávexti og nemendur og kennarar sungu fyrir hann. Í útiveru flaggaði hann síðan íslenska fánanum. Við í Krílakoti óskum Hilmari Thor og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.