Sími: 460 4950
Okkur á Hólakoti langar að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og við vonum að þið eigið dásamlega samveru í faðmi fjölskyldu og vina. Það er ekki ofsögum sagt að segja að þetta er mjög skemmtilegur, námfús, fjörugur og kraftmikill hópur. Samstarfið við ykkur hefur líka verið til fyrirmyndar og vonandi heldur allt áfram á sömu braut. Hugsið vel hvort um annað yfir jólin. Við sendum okkar hlýjustu jólakveðjur og hlökkum til að sjá ykkur, endurnærð eftir hátíðarnar.
Kveðja Hólakotskennarar