Gjafir sem leikskólanum hafa borist í haust

Gjafir sem leikskólanum hafa borist í haust

Núna í haust hafa nokkrir aðilar fært leikskólanum gjafir.

Þernan færði okkur 4 stk leiktæki til málörvuna fyrir yngstu nemendur, þau ýta á takka og hljóðin eru öll á íslensku.

Slysavarnadeildin á Dalvík færði okkur ný vesti sem var kærkomið

Foreldrafélagið færði leikskólanum veglega körfu með hinum ýmsu kræsingum núna í desember.

Viljum við koma þakklæti til þessara aðila með kærri kveðju

Frá starfsfólki og nemendum í Krílakoti.