Erika Lea 2 ára

Erika Lea 2 ára

Erika Lea varð 2 ára þann 23. ágúst, við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum í tilefni dagsins. Hún málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hana afmælissönginn. Við blésum saman á kertin tvö og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Eriku Leu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.