Afmæli Lubba

Afmæli Lubba

Í dag á Degi íslenskrar tungu  var deginum fagnað í leikskólanum á ýmsan hátt en það sem stóð uppúr að mati nemenda var afmæli Lubba.  Í tilefni dagsins bjuggu allir nemendur sér til kórónur og haldið var upp á afmælið hans með söngsal og allir fengu popp eða saltstangir, svo fór Lubbu út og flaggaði íslenska fánanum. VIð óskum Lubba til hamingju með daginn og vonum að hann hafi átt góðan dag.