Elma María 4 ára

Elma María 4 ára

Elsku Elma María okkar varð fjögurra ára í gær og héldum við upp á það í leikskólanum í dag. Hún bjó málaði og skreytti glæsilega kórónu. Við sungum fyrir hana afmælissönginn, hún blés á kertin fjögur og bauð svo upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Hún flaggaði svo íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Elmu Maríu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.