Ellen 3 ára

Ellen 3 ára

Elsku Ellen okkar varð 3 ára þann 4. janúar, við héldum upp á afmælið hennar í gær í leikskólanum í tilefni dagsins. Hún málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hana afmælissönginn. Við blésum saman á kertin þrjú og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Ellen og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.