Dagur Máni 2 ára

Dagur Máni 2 ára

Dagur Máni varð 2 ára í gær 19. desember, við héldum upp á afmælið hans í leikskólanum í tilefni dagsins. Hann málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hann afmælissönginn. Við blésum saman á kertin tvö og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Degi Mána og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.