Bókasafnsferð 10. október 2022

Bókasafnsferð 10. október 2022

Á mánudaginn fór einn hópur í heimsókn á Bókasafnið. Þetta var helmingurinn af börnunum sem fædd eru 2019. Heimsóknin gekk mjög vel og voru nemendur til fyrirmyndar. Björk Eldjárn las fyrir þau eina bók og spjallaði aðeins við þau, síðan fengu þau að lita mynd. Hinn hópurinn fer svo 7. nóvember. Hvor hópur fer svo aftur einu sinni eftir áramótin, nánari dagsetning er ekki komin á þær heimsóknir. Myndir af heimsókninni er hægt að sjá á myndasíðunni.