Birnir Sölvi 4 ára

Birnir Sölvi 4 ára

Elsku Birnir Sölvi okkar verður fjögurra ára á sunnudaginn, 8. janúar. Við héldum upp á daginn hans í leikskólanum í dag. Hann bjó til glæsilega kórónu sem hann var með í dag, við sungum fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur. Hann bauð svo upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Þegar við komum út flaggaði hann íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Birni Sölva og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.