Auðunn Ingi 3 ára

Auðunn Ingi 3 ára

Elsku Auðunn Ingi okkar varð 3 ára 16. september sl. Við héldum daginn hans hátíðlegan í leikskólanum mánudaginn 19. september. Hann málaði kórónu og skreytti, við sungum afmælissönginn fyrir hann, hann blés á kertin þrjú og bauð svo upp á ávexti úr ávaxtakörfunni. Svo flaggaði hann auðvitað íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Auðunni Inga og fjölskyldu hans innilega til hamingju.