Aron Ísak 6 ára

Aron Ísak 6 ára

Á þriðjudaginn 2. apríl héldum við upp á 6 ára afmæli Arons Ísaks en hann átti afmæli 31 mars. Í tilefni dagsins setti hann upp glæsilegu kórónuna sína, blés á kertin 6, gaf afmælisávexti og nemendur og kennarar sungu fyrir hann. Í útiveru flaggaði hann síðan íslenska fánanum. Við í Krílakoti óskum Aroni Ísak og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.