Arey Lilja 4 ára

Arey Lilja 4 ára

Á þriðjudaginn 30. desember átti Arey Lilja 4. ára afmæli. Við héldum upp á daginn hennar í leikskólanum í dag. Hún gaf krökkunum afmælisávexti ásamt því að nemendur og kennarar sungu fyrir hana. Í útiveru flaggaði hún íslenska fánanum. Við á Krílakoti óskum Arey og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.