Antonía Guðrún 3 ára

Antonía Guðrún 3 ára

Í gær, 9. október, varð elsku Antonía Guðrún okkar þriggja ára. Við héldum upp á afmælið í leikskólanum á föstudaginn. Hún málaði og skreytti kórónu sem hún var með í afmælinu, við sungum fyrir hana afmælissönginn, hún blés á kertin þrjú og bauð svo upp á ávexti úr ávaxtakörfunni. Svo flaggaði hún auðvitað íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Antoníu Guðrúnu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.