Alexandra Ósk 3 ára

Alexandra Ósk 3 ára

Elsku Alexandra Ósk okkar verður 3 ára þann 4. febrúar, við héldum upp á afmælið hennar í gær í leikskólanum í tilefni dagsins. Hún málaði fallega kórónu og við sungum fyrir hana afmælissönginn. Við blésum saman á kertin þrjú og hjálpuðumst að við að bjóða ávexti úr ávaxtakörfunni góðu. Við óskum Alexöndru Ósk og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.