Sara Phim 4 ára

Sara Phim 4 ára

Á föstudaginn héldum við upp á afmælið hennar Söru Phim en hún varð 4 ára á mánudaginn, 5. júní. Í tilefni dagsins bjó hún til kórónu sem hún bar, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni, flaggaði íslenska fánanum og svo var afmælissöngurinn sunginn fyrir hana. Við óskum Söru Phim og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.