Kaffihúsaferð og spariávextir í boði foreldrafélagsins

Kaffihúsaferð og spariávextir í boði foreldrafélagsins

Sú skemmtilega hefð hefur verið hér í Krílakoti að foreldrafélagið býður elstu fjórum deildunum á kaffihús í desember og Skýjaborg upp á spariávexti. Börnin röltu héðan kát og spennt á kaffihúsið og fengi kakó og smákökur til að gæða sér á. Hólakot og Kátakot fóru á Gísla, Eirík og Helga og Sólkot og Mánakot fóru á Basalt cafe bistro. Þökkum við foreldrafélaginu kærlega fyrir okkur frá öllum í Krílakoti.

Hér fyrir neðan eru svo nokkrar skemmtilegar myndir úr þessum ferðum ásamt ávextastundinni á skýjaborg