Innritun fyrir leikskólapláss skólaárið 2020 - 2021

Innritun fyrir leikskólapláss skólaárið 2020 - 2021

Foreldrar sem óska eftir leikskólaplássi í Krílakoti fyrir skólaárið 2020 - 2021 þurfa að skila inn umsókn eigi síðar en 24. apríl

Athugið að þetta á aðeins við um þá sem ekki hafa þegar sótt um.

Sækja þarf um leikskóla á rafrænu formi á heimasíðu Dalvikurbyggðar http://min.dalvikurbyggd.is/login.aspx

Innritun fyrir komandi skólaár hefst í lok apríl og fá foreldrar senda tilkynningu í tölvupósti með upplýsingum s.s. um tímasetningar og fyrirkomulag aðlögunar barna. Tímasetning aðlögunar ræðst aðallega af tveim þáttum þ.e. sumarlokun leikskólans og uppsögnum barna af elsta árgangi. Fjöldi barna í skóla ræðst af stærð hans og lýkur innritun þegar þeim barnafjölda hefur verið náð. Ef börn hætta í leikskólanum yfir vetrarmánuðina eru ný börn innrituð.