Sími: 460 4950
Einar Bragi verður þriggja ára á sunnudaginn, 5 mars. Við héldum upp á daginn hans í leikskólanum í dag. Hann bjó til glæsilega kórónu sem hann var með í dag, við sungum fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú. Hann bauð svo upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Þegar við komum út flaggaði hann íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Einari Braga og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.