Dagur leikskólans 6. febrúar

Dagur leikskólans 6. febrúar

Dagur leikskólans næstkomandi þriðjudag 6. febrúar

Þann 6. febrúar er dagur leikskólans og við höldum að sjálfsögðu upp á daginn hjá okkur í Krílakoti. Ykkur foreldrum er boðið í heimsókn til okkar og opið hús frá 13:30 – 15:30 þann dag. Það verður opið milli deilda og börnin munu geta leikið sér á öllum svæðum okkar í húsinu. Einnig verða veitingar í boði foreldra sem þið getið gætt ykkur á. Þar sem nýlega er búin aðlögun á Skýjaborg langar okkur að biðla til ykkar að fara ekki með börnin ykkar þangað. Auðvita er þeim foreldrum sem eiga börn á Skýjaborg velkomið að koma þangað og vera með þeim þar eða koma með þeim yfir á hinar deildarnar. Einnig er það á ábyrgð þeirra foreldra sem eiga börn báðu megin í húsinu (á Skýjaborg og á einhverri annarri deild) að fara með eldri börnin yfir á Skýjaborg, það er að sjálfsögðu velkomið að gera það en það er þá á ábyrgð foreldra. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur sem flest og vonum að þið njótið þess að koma og leika með okkur og börnunum ykkar, og þannig halda með okkur upp á þennan dag.

Verið velkomin

kveðja starfsfólk Krílakots