Bleikur dagur

Bleikur dagur

Bleiki dagurinn er haldinn hátíðlegur í dag föstudaginn 15. október. Í dag hvetjum við alla til að sýna stuðning við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra með því að klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi.

Við munum að sjálfsögðu taka þátt í þessum degi hér á Krílakoti og í tilefni dagsins fengu krakkarnir bleikan grjónagraut og bleika mjólk sem vakti mikla lukku.