112 dagurinn í Krílakoti

112 dagurinn í Krílakoti

Neyðarlínan heldur merkjum 112 á lofti þann 11.febrúar ár hvert, af því dagsetningin 11.2. minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 112. Það er mikilvægt að minna á þetta númer - af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð

Í dag héldum við upp á 1-1-2 daginn 11 febrúar. Við fengum í heimsókn til okkar aðila frá björgunarsveitinni, sjúkrabílnum og slökkviliðinu. Mikil spenna var að fá að fara út og skoða alla bílana að innan sem utan og ekki skemmdi þegar ljósin og sírenurnar fóru í gang. Takk kærlega fyrir okkur.

Foreldrar geta séð fleiri myndir inn á deildarsíðum.