Veitu- og hafnaráð

77. fundur 05. september 2018 kl. 08:00 - 09:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Valdimar Bragason formaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
  • Ásdís Svanborg Jónasdóttir aðalmaður
  • Kristján Hjartarson Aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
  • Rúnar Þór Ingvarsson Starfsmaður
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
Rúnar Þór Ingvarsson vék af fundi kl: 8:20

1.Fjárhagsáætlun 2018; hækkun á tekjuáætlun Hafnasjóðs - viðauki

Málsnúmer 201809010Vakta málsnúmer

Tekjur Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar á fyrstu sjö mánuðum árins eru töluvert meiri en áætlun 2018 gerði ráð fyrir, munar þar um 13,6 milljónum. Eftir skoðun á þeim tekjum sem vænta má á síðari hluta ársins leggur veitu- og hafnaráð til við byggðarráð að tekjuáætlun Hafnasjóðs fyrir árið 2018 verði hækkuð um kr. 20,0 milljóir.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

2.Dýpkun við stálþil Austurgars.

Málsnúmer 201807020Vakta málsnúmer

Á 75. fundi veitu- og hafnaráðs var eftirfarandi fært til bókar: "Eins og fram hefur komið er nauðsyn á að dýpka næst Austurgarði, þ.e. við stálþilið og í u.þ.b. 5m frá þili. Gert er ráð fyrir því að núverandi verktak sjái um þennan verkþátt á einingarverði. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er magnið um 2.000 m3. Gert er ráð fyrir að efninu sem upp verði mokað verði komið fyrir í fjörunni norðan við núverandi ytri mannvirki Dalvíkurhafnar."

Einnig var fært til bókar eftirfarandi niðurstaða:"Veitu- og hafnaráð samþykkir að gerð verði verðkönnum hjá núverandi verktaka í umræddan verkþátt. Ef viðunandi tilboð kemur þá hefur sviðsstjóri heimild til að semja við verktaka."

Sviðstjóri kynnti tilboð verktaka samkvæmt ofangreindu og samþykki frá siglingasviði Vegagerðar ríkisins.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða tilboð Árna Helgasonar ehf.

3.Starfs- og fjárhagsáætlun 2019.

Málsnúmer 201808031Vakta málsnúmer

Farið var yfir tillögur að framkvæmdum næsta árs og í tengslum við það var þiggja ára áætlun skoðuð til að sjá hvert framlag var áætlað á árinu 2019, til framkvæmda, við afgreiðslu sveitarstjórnar á fjárhagsáætlun 2018.
Sviðsstjóra falið að kostnaðargreina þau verkefni sem voru til umræðu á fundinum.

4.Áætlun um úrbætur í fráveitumálum

Málsnúmer 201808097Vakta málsnúmer

Með tölvupósti, sem dagsettur er 30.08.2018, sendir Umhverfisstofnun út meðfylgjandi bréf, dags. 30. ágúst 2018, þar sem óskað er eftir upplýsingum um áætlanir um úrbætur í frárennslismálum stærri þéttbýla (2.000 pe. og meira) í þeim tilvikum sem stofnunin telur að úrbóta kunni að vera þörf.

Fram kemur að meðfylgjandi er einnig Excel-tafla þar sem fram kemur hvaða þéttbýli um er að ræða hjá sveitarfélaginu. Óskað er eftir að umbeðnar upplýsingar verði færðar inn í töfluna.

Að öðru leyti er vísað í bréfið og Excel-skjalið.

Veitu- og hafnaráð felur svisstjóra að svara erindinu.

5.Virkjun vegna seiðaeldis á Árskógssandi

Málsnúmer 201809022Vakta málsnúmer

Vatnsveita Dalvíkurbyggðar starfrækir vatnsveitu á Árskógsströnd og því rökrétt að umræða fari fram um aðkomu hennar að vatnssölu til væntanlegs fyrirtækis ,sem hefur hug á að hefja seiðaeldi á Árskógsströnd. Kynning á verkefninu fór fram á íbúafundi sem haldinn var í Árskógi 11. júlí sl. eftirfarandi kemur fram í fundargerð fundarins svo vitnað beint í fundargerð:
„spurning um votlendið, sem var meira beint til sveitarstjórnar, með borholurnar og allt þetta umstang, verður votlendið ennþá fyrir neðan bakkann? Það skipir máli, nú er verið að endurheimta votlendi um allt land, skipir miklu máli hvernig það verður.“
Og svarað var: "Það er bara spurning um útfærslu, ef menn vilja halda votlendinum setjum við það sem forsendur, tilraunaholan gæti verið dýpri og þannig tryggt það."

Umræður urðu töluverðar; í þeim komu fram áhyggjur íbúa um hvernig vatnsöflunin yrði og það rask sem hún myndi valda á því svæði sem hún yrði framkvæmd.

Veitu- og hafnaráð leggur til við sveitarstjórn að hún feli Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar að hefja viðræður við Laxós um vatnssölu til fyrirtækisins vegna hugmynda fyrirtækisins um starfrækslu á seiðaeldisstöð á Árskógssandi.


Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

Fundi slitið - kl. 09:45.

Nefndarmenn
  • Valdimar Bragason formaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
  • Ásdís Svanborg Jónasdóttir aðalmaður
  • Kristján Hjartarson Aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
  • Rúnar Þór Ingvarsson Starfsmaður
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs