Kattahald

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra fer með málefni katta og kattahalds skv. lögum nr. 7/1998 og sér umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar um framkvæmd samþykktar þessarar í umboði Heilbrigðisnefndarinnar.

Umsókn um leyfi til kattahalds skal senda umhverfis- og tæknisviði Dalvíkurbyggðar innan mánaðar frá því að köttur er tekinn inn á heimili.
Skylt er að ormahreinsa ketti á hverju ári og skal Dalvíkurbyggð hafa frumkvæði að því og bjóða upp á slíka þjónustu í sveitarfélaginu ár hvert.
Kattahreinsun er auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins á hverju hausti.
Nánari upplýsingar er að finna í Samþykkt um kattahald sem finna má í tengli hér fyrir ofan.

Til að skrá kött þarf að fara gegnum Mín Dalvíkurbyggð og senda inn umsókn.