Almenn þjónusta

Þjónusta við áhafnir er af ýmsum toga í Dalvíkurbyggð. Á staðnum eru verslanir, veitingastaðir og kaffihús, gisting, heilsugæsla, sundlaug og líkamsrækt svo eitthvað sé nefnt.  Í Bergi menningarhúsi er Bókasafn Dalvíkurbyggðarauk þess sem þar eru ýmsir viðburðir allt árið.