Umhverfisráð

295. fundur 15. september 2017 kl. 15:00 - 18:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Hólmfríður M Sigurðardóttir varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Friðrik Vilhelmsson boðaði forföll og í hans stað mætti Hólmfríður Margrét Sigurðardóttir
Haukur A Gunnarssomn vék af fundi undir þessu lið kl. 15:00

1.Fjárhagsáætlun 2018; umsókn um áframhaldandi styrk

Málsnúmer 201708076Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Björgunarsveitinni á Dalvík, dagsett þann 28. ágúst 2017, þar sem óskað er eftir endurnýjun á samningi og áframhaldandi styrk.
Umhverfisráð leggur til að gengið verði að endurnýjun á samningi við Björgunarsveitina Dalvík samkvæmt framlögðum gögnum.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Haukur A Gunnarsson koma aftur inn á fundinn kl. 15:13

2.Uppfylling á lóð Samherja fyrir neðan kaupfélagsbakkann

Málsnúmer 201704091Vakta málsnúmer

Á 820. fundi byggðarráðs þann 4. maí var eftirfarandi bókað:
" Tekið fyrir erindi frá framkvæmdastjóra Fiskidagsins mikla Júlíusi Júlíusarsyni dags. 15.12.2016 þar sem óskað er eftir aðkomu Dalvíkurbyggðar við að búa til stalla eða sæti í brekkuna neðan við kaupfélagið. Einnig var tekið fyrir erindi frá stjórn Fiskidagsins mikla dags. 13.04.2017 sem fjallar um sama erindi. Einnig var lagt fram bréf frá Gesti Geirssyni fyrir hönd Samherja sem gefur leyfi fyrir þessari framkvæmd en samþykkið felur ekki í sér neinar fjárhagsskuldbindingar af hálfu Samherja.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umræðu og frekari útfærslu hjá umhverfissráði."
Umhverfiráð getur ekki orðið við umbeðinni framkvæmd, en leggur til að fiskidagsnefnd ásamt fulltrúum frá Samherja verði kallaðir til fundar þar sem tillagan verður rædd frekar.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

3.Fjárhagsáætlun 2018; aukið fjárframlag

Málsnúmer 201709012Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Golfklúbbnum Hamar, dagsett þann 31. ágúst 2017, þar sem óskað er eftir auknu fjárframlagi til nokkurra verkefna.

Byggðaráð vísar ofangreindu erindi til umfjöllunar umhverfisráðs vegna skipulagsmála og að ráðið komi með tillögu til byggðaráðs um afgreiðslu.
Umhverfisráð leggur til að forsvarsmenn golfklúbbsins verði boðaðir á fund umhverfisráðs þar sem farið verði yfir innsent erindi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

4.Uppbygging á vallarsvæði UMFS á Dalvík

Málsnúmer 201709001Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá stjórn UMFS, dagsett þann 30. ágúst 2017, er varðar uppbyggingu á vallarsvæði UMFS á Dalvík, en stjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning og framkvæmdir á endurbyggingu á íþróttasvæði félagsins á næsta ári.
Samþykkt stjórnar UMFS byggir á aðkomu Dalvíkurbygðar um fjármögnun á framkvæmdakostnaði og árlegs rekstrarstyrks til að reka svæðið.
Skipulagslýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi og nýs deiliskipulags hefur þegar verið unnin og tillaga að aðalskipulagsbreytingu ásamt deiliskipulagstillögu er í vinnslu.

5.Fjárhagsáætlun 2018; göngustígur á Árskógssandi

Málsnúmer 201709006Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Íbúasamtökunum á Árskógssandi, dagsett þann 1. september 2017, þar sem óskað er eftir fjárveitingu í gerð göngustígs með lýsingu og gróðursetningu.
Umhverfisráð leggur til að sótt verði um styrk til Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðar lagningar á göngustíg.
Ráðið leggur til að hlutdeild sveitarfélagsins við verkefnið verði sett á fjárhagsáætlun 2019-2021.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

6.Fjárhagsáætlun 2018; umhverfismál

Málsnúmer 201709003Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Dóróþeu Guðrúnu Reimardóttur, dagsett þann 31. ágúst 2017, þar sem bent er á og minnt á nokkur umhverfismál; svæðið við enda Grundargötu, umhirða meðfram gangstígum sem liggja frá Böggvisbraut að Íþróttamiðstöð, erindi frá íbúum Túnahverfis haustið 2015.
Umhverfisráð leggur til að gerð verði íbúakönnun um hvernig útlit /nýting Baldurshagareits á að vera og í framhaldinu verði þær tillögur útfærðar á árinu 2018. Hvað varðar umhverfi Hringtúns þá er deiliskipulag í vinnslu á því svæði ásamt göngustígum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

7.Fjárhagsáætlun 2018; frágangur á svæðum í kringum lóð

Málsnúmer 201709007Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Hafþóri Gunnarssyni, rafpóstur dagsettur þann 31. ágúst 2017, er varðar frágang og umhirðu á svæðum er liggja að lóð hans.
Ekki er hægt að verða við erindinu þar sem deiliskipulag svæðisins liggur ekki fyrir, en vinnan við það er komin vel á veg.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

8.Varðar rafhleðslustöð og tengingu á henni

Málsnúmer 201702072Vakta málsnúmer

Til umræðu uppsetning og tenging á rafhleðslustöð sem sveitarfélaginu barst að gjöf frá Orkusölunni ehf.
Umhverfisráð leggur til að farið verði í ofangreinda framkvæmd á árinu 2018.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

9.Innviðir fyrir rafbíla - styrkur Orkusjóðs

Málsnúmer 201706015Vakta málsnúmer

Til umræðu aðkoma sveitarfélagsins að uppsetningu á hraðhleðslustöð á Dalvík.
Umhverfisráð leggur til að Dalvíkurbyggð komi að framkvæmdum við uppsetningu á hraðhleðslustöð á Dalvík.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

10.Fjárhagsáætlun 2018; vegagerð að Bjórböðunum

Málsnúmer 201708022Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Bjórböðunum ehf. og Bruggsmiðjunni Kalda ehf., rafbréf dagsett þann 8. ágúst 2017, þar sem óskað er eftir að lokið verði við varanlega vegagerð að Bjórböðunum.
Umhverfisráð leggur til að farið verið í ofangreinda framkvæmd á árinu 2018 eins og fram kemur í framkvæmdartillögu ráðsins.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

11.Fjárhagsáætlun 2018: endurnýjun og/eða viðhald á stoðvegg á lóðarmörkum við Hafnarbraut 16 og 18

Málsnúmer 201708036Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Herberti Hjálmarssyni, Guðrúnu F. Skarphéðinsdóttur, Hólmfríði A. Gísladóttur og Júlíusi Baldurssyni, dagsett þann 4. ágúst 2017, þar sem óskað er eftir að stoðveggur á lóðamörkum við Hafnarbraut verði endurnýjaður og/eða honum viðhaldið.
Umhverfisráð leggur til að frestað verði afgreiðslu þessa erindis þar til fullnægjandi gögn liggja fyrir um eignarhald á stoðveggjunum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Guðrún Anna Óskarsdóttir lýsti sig vanhæfa og vék af fundi undir þessu lið kl. 16:00

12.Ósk um lagninu göngustígs úr Kotunum að vegi yfir Brimnesá

Málsnúmer 201608104Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Kötlu Ketilsdóttur, Kára Brynjólfssyni, Láru Betty Harðardóttur og Skafta Brynjólfssyni, dagsett þann 31. ágúst 2016, þar sem þau óska eftir því við sveitarfélagið að lagður verði göngustígur úr 'kotunum' yfir að nýgerðum vegi yfir Brimnesá.
Umhverfisráð leggur til að farið verði í þessa framkvæmd lýkt og fram kemur í framkvæmdartillögu ráðsins.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

13.Trausti Þorsteinsson; vegna fjárhagsáætlunargerðar 2017. Vegur að Framnesi

Málsnúmer 201608088Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Trausta Þorsteinssyni, dagsett þann 25. ágúst 2016, þar sem vakin er athygli á ástandi vegar að Framnesi sem og að huga þurfi að koma í veg fyrir landbrot á svæðinu.
Umhverfiráð leggur til að farið verði í hluta af umbeðinni framkvæmt eins og fram kemur í framkvæmdatillögu ráðsins.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Guðrún Anna Óskarsdóttir kom aftur inn á fundinn kl. 16:20

14.Vegna fjárhagsáætlunar 2018

Málsnúmer 201708092Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá húseigendum að Melum og Karlsrauðatorgi 21, dagsett þann 3. ágúst 2017, þar sem óskað er eftir að lagt verði bundið slitlag á heimreið að Melum og Dalbæ.
Umhverfiráð leggur til að farið verði í umbeðna framkvæmd eins og fram kemur í framkvæmdatillögu ráðsins.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

15.Fjárhagsáætlun 2018; kantsteinar og sandfok

Málsnúmer 201708068Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Elínu Ásu Hreiðarsdóttur og Ara Jóni Kjartanssyni, rafpóstur dagsettur þann 23. ágúst 2017, er varðar kantsteina í Grundargötu og Sandskeiði. Einnig óska þau eftir að fundin verði varanleg lausn á sandfoki úr fjörunni við Grundargötu 15.
Umhverfiráð leggur til að lagður verði nýr kantsteinn við Sandskeið eins og fram kemur í framkvæmdatillögu ráðsins. Hvað varðar sandfok vísar ráðið til þess að þegar hefur verið óskað eftir flutningi á sjóvörn við Sandskeið til Vegagerðarinnar.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

16.Vegna auglýsingar um fjárhagsáætlun fyrir árið 2018

Málsnúmer 201708091Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá íbúum í Laugarhlíðarhverfi í Svarfaðardal, dagsett þann 27. ágúst 2017, þar sem þess er óskað að vegir upp í hverfið verði lagfærðir, sett verði bundið slitlag ásamt lýsingu.
Umhverfiráð leggur til að farið verði í umbeðna vegaframkvædt eins og fram kemur í framkvæmdatillögu ráðsins, en leggur til að götulýsing verði sett á áætlun 2019-2021.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

17.Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.

Málsnúmer 201608099Vakta málsnúmer

Til umræðu umsagnir og ábendingar vegna skipulagslýsingar á aðalskipulagsbreytingum á Árskógssandi, Dalvíkurbyggð.
Ráðið þakkar innsendar ábendingar,athugasemdir og umsagnir og leggur áherslu á að við vinnu deiliskipulagstillögu verði tekið tillit til þeirra. Ráðið leggur til að haldinn verði íbúafundur þegar tillaga að deiliskipulagi liggur fyrir.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

18.Vinna U&T við starfs- og fjárhagsáætlun 2018

Málsnúmer 201709041Vakta málsnúmer

Til umræðu og afgreiðslu starfs- og fjárhagsáætlun 2018.
Umhverfisráð samþykkir framlagðar áætlanir með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á fundinum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

19.Gjaldskrár umhverfisráðs 2018

Málsnúmer 201709104Vakta málsnúmer

Til umræðu og afgreiðslu gjaldskrár umhverfisráðs 2018.
Umhverfisráð samþykkir framlagðar gjaldskrár með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Hólmfríður M Sigurðardóttir varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs