Menningarráð

36. fundur 27. mars 2013 kl. 08:15 - 10:30 í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson Formaður
  • Þóra Rósa Geirsdóttir
  • Hlín Torfadóttir
  • Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá

1.17.júní 2013

Málsnúmer 201303194Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Árni Jónsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fundinn.
Rætt var um hvaða áherslur ætti að leggja við undirbúning hátíðarhalda 17. júní 2013 og góðar umræður urðu um þau mál. Menningarráð þakkar Árna fyrir komuna á fundinn.

2.Umsókn um áframhaldandi leigu á Sigtúni

Málsnúmer 201303169Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi bréf frá Sigríði Guðmundsdóttur þar sem hún óskar eftir áframhaldandi leigu á Sigtúni en samningur við hana er útrunninn. Menningarráð samþykkir að leiga Sigríði húsnæðið  til 31. maí 2013 og gerður verður sérstakur leigusamningur þar um.

3.Starfsmannakönnun fræðslu- og menningarsviðs

Málsnúmer 201303200Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri kynnti helstu niðurstöður starfsmannakönnunar sviðsins um líðan og viðhorf sem lögð var fyrir nú í mars en niðurstöður er almennt mjög jákvæðar.

4.Framtíðarnýting á Ungó og Sigtúni

Málsnúmer 201212038Vakta málsnúmer

Á 34. fundi menningarráðs var eftirfarandi bókað: "Undir þessum lið komu Kristján Guðmundsson formaður Leikfélags Dalvíkur og Jenný Heiðarsdóttir.
Rætt var um hvaða starfssemi færi vel með starfsemi Leikfélagsins í Ungó. Nú er á fjárhagsáætlun 2013 og þriggja ára áætlun að gera húsnæðið upp að utan og eru aðilar sammála um mikla möguleika Ungó og Sigtúns og að mikilvægt sé að nýta húsnæðið allan ársins hring.

Klukkan 08:40 kom Kristín Aðalheiður Símonardóttir og sat fundinn undir þessum lið. Rætt var um möguleika þess að Sögusetur Bakkabræðra yrði í Ungó sem og upplýsingamiðstöð og jafnframt yrði anddyri leikhússins stækkað eins og stefnt hefur verið að frá kaupum á Sigtúni. Bæði forsvarsmönnum leikfélagsins og Kristínu Aðalheiði f.h. Sögusetursins finnst samvinnan afar spennandi og sjá hana ganga upp.

Menningarráð óskar eftir því við stjórn Leikfélagsins að það kynni hugmyndir fyrir stjórn og leiti frekari hugmynda.
Jafnframt leggur Menningarráð til við bæjarstjórn að leigendum í Sigtúni verði sagt upp leigu á húsnæðinu en þegar hefur leikfélagið hluta hússins í notkun.
Frekari umræðu um framtíðarnýtingu Ungó/Sigtúns verður haldið áfram á málþingi Menningarráðs um menningarstefnu Dalvíkurbyggðar sem áætlað er að halda í febrúar og ákvörðun um framtíðarnýtingu hússins liggi fyrir í vor."

 

Á málþingi um menningarmál voru málefni Ungó og Sigtúns til umræðu en í auglýsingu um málþingið var jafnframt auglýst eftir aðilum sem kynnu að hafa áhuga á að koma að rekstri eða starfsemi í húsinu. Enginn lýsti formlegum áhuga á því, annar en Sögusetur Bakkabræðra, en margar góðar hugmyndir komu fram að frekari nýtingu s.s. með bíósal, kaffihúsi o.fl.

Menningarráð felur formanni ráðsins, sviðsstjóra og sveitarstjóra að kalla forsvarsmenn Söguseturs Bakkabræðra á fund til að skoða hvort markmið allra aðila séu sameiginleg og hefja vinnu við gerð samnings ef svo er.

5.Menningarstefna Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 201211032Vakta málsnúmer

Menningarráð fór yfir niðurstöður málþings um menningarmál sem haldin var 27. febrúar sl.  Frekari vinnu verður haldið áfram á næsta fundi ráðsins.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson Formaður
  • Þóra Rósa Geirsdóttir
  • Hlín Torfadóttir
  • Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri Fræðslu- og menningarsviðs