Frá Jóhanni Má Kristinssyni; Úrsögn úr íþrótta- og æskulýðsráði

Málsnúmer 202401065

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 365. fundur - 23.01.2024

Tekið fyrir erindi frá Jóhanni Má Kristinssyni, dagsett þann 9. janúar sl., þar sem hann óskar lausnar frá störfum sem formaður íþrótta- og æskulýðsráðs þar sem Jóhann Már hefur tekið að sér starf sem þjálfari meistaraflokks kvenna í fótbolta í Dalvíkurbyggð.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Jóhanni Má Kristinssyni lausn frá störfum sem formaður íþrótta- og æskulýðsráðs.
Sveitarstjórn færir Jóhanni þakkir fyrir störf hans í þágu sveitarfélagsins.